Stóri Sam Allardyce, nýráðinn landsliðsþjálfari Englands, á enn eftir að ákveða hvort Wayne Rooney, verði áfram fyrirliði enska liðsins.
Stóri Sam segir of snemmt að opinbera hver verði með bandið.
„Ég ætla að bíða með þessa ákvörðun þar til ég er búinn að hitta alla leikmenn og setja saman starfslið," segir Stóri Sam.
Hann segist ætla að leggja áherslu á að sínir menn spili með stolti fyrir þjóð sína.
„Liðsheildin er gríðarlega mikilvæg og ég ætla að reyna að búa til góðan liðsanda. Það verður að hafa gaman, fótbolti er skemmtun og ég hef skemmt mér í mörg ár."
Athugasemdir