Chelsea hefur eytt 140 milljónum punda í sumar í þá Alvaro Morata, Tiemoue Bakayoko og Antonio Rudiger. Það er þó einungis byrjunin á eyðslu Chelsea í sumar ef marka má frétt Sky Sports í dag.
Sky segir að Virgil van Dijk, Antonio Candreva, Fernando Llorente og Alex Sandro séu allir á óskalista Chelsea.
Varnarmaðurinn öflugi Van Dijk æfir einn þessa dagana en hann vill fara frá Southampton.
Llorente hefur verið lengi á óskalista Chelsea en félagið reyndi að fá spænska framherjann í sínar raðir frá Swansea í janúar.
Candreva, miðjumaður Inter, og Sandro, vinstri bakvörður Juventus hafa einnig verið á óskalistanum hjá Conte í sumar og Chelsea gæti boðið í þá á næstunni.
Athugasemdir