Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 25. júlí 2017 15:00
Magnús Már Einarsson
FH stefnir á að fá liðsstyrk
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, vonast til að fá liðsstyrk áður en félagaskiptagluginn lokar í næstu viku.

„Við erum að reyna að vinna þessi mál faglega," sagði Heimir í samtali við Fótbolta.net í dag.

„Við erum að skoða í kringum okkur og erum komnir með einhvern nöfn á blað. Við skoðum síðan hvort það gangi ekki."

Heimir vill lítið gefa upp um það í hvaða stöðu hann er að leita að leikmanni.

„Við erum að leita að varnarmanni, miðjumanni og sóknarmanni," sagði Heimir og hló.

FH er þessa stundina í Slóveníu en liðið mætir Maribor í fyrri leiknum í 3. umferð Meistaradeildarinnar annað kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner