FH-ingar eru með tveggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildarinnar eftir 3-2 útisigur gegn Víkingi. Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleik en eftir að hafa lent undir komst FH 3-1 yfir áður en heimamenn minnkuðu muninn í uppbótartíma.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 3 FH
„Við spiluðum ágætlega í dag. Víkingar ætluðu að reyna að særa okkur með skyndisóknum en við kláruðum þetta. Við lentum undir en það var frábært að jafna mínútu seinna. Eftir það fannst mér þetta aldrei spurning," sagði Davíð Þór Viðarsson, miðjumaður FH.
Ivanov í liði Víkings fékk annað gult spjald fyrir meint olnbogaskot á Davíð og þar með rautt í stöðunni 1-1. Davíð blóðgaðist eftir högg og lauk leik með sárabindi.
„Við hoppuðum upp í skallabolta og ég held að ég hafi fengið olnbogann í hausinn á mér. Einhver vildi meina að hann hefði skallað mig en ég fékk allavega högg."
Atli Viðar Björnsson kom FH yfir eftir að hafa komið af bekknum. „Hann þarf ekki margar mínútur til að skora og er frábær að finna sér svæði."
Viðtalið má sjá í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir