Rúnar Kristinsson, þjálfari KR var sáttur við stigin þrjú sem liðið fékk gegn Fram í kvöld en viðurkenndi að þetta hafi ekki verið besti leikur KR.
Lestu um leikinn: Fram 1 - 2 KR
,,Nei, alls ekki Framaranir voru mjög góðir í þessum leik, þeir áttu sjálfsagt meira skilið heldur en ekkert. Við vorum heppnir að fara inn í hálfleikinn í 0-0.
,,Menn gerðu sér grein fyrir stöðunni í hálfleik, við gátum rætt málin og farið yfir stöðuna. Við þurftum á þremur stigum að halda."
,,Við byrjuðum síðari hálfleikinn af miklum krafti, settum pressu á þá, við náðum að skapa okkur færi. Skoruðum tvö góð mörk og hefðum getað skorað það þriðja."
KR á Stjörnuna í næsta leik sem er mikilvægur upp á toppbaráttuna.
,,Allir leikirnir í deildinni eru spennandi, í ljósi þess að Stjarnan tapaði stigum þá getum við nálgast þá enn frekar."
Viðtalið við Rúnar má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir