Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   þri 25. ágúst 2015 20:56
Magnús Þór Jónsson
Andri Rúnar: Vissi að Davíð væri að fara alla leið
Andri tryggði Víkingi sigur.
Andri tryggði Víkingi sigur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Rúnar Bjarnason tryggði Víkingi 1-0 sigur gegn ÍBV í mikilvægum leik liðanna í Pepsi-deildinni í kvöld og var hann að vonum ánægður með sigurinn.

Sigurmark Andra Rúnars kom á 93. mínútu eftir öfluga skyndisókn, en Víkingur fór upp í 6. sæti deildarinnar og er nú með 21 stig.

„Þetta var risastórt mark og ég er mjög feginn," sagði Andri Rúnar við Fótbolta.net eftir leikinn.

„Við getum ekki bara pressað í 90 mínútur, við þurfum að vera þéttir líka. Við erum búnir að sýna það í seinni hlutanum að við erum rosalega þéttir, við þurfum bara að skora eitt mark þegar við erum svona þéttir og það kom í dag."

Andri Rúnar var sannfærður um að Davíð Örn Atlason væri að fara að geysast upp kantinn um leið og sá síðarnefndi fékk boltann í aðdraganda sigurmarksins.

„Ég var alveg á hinum kantinum og svo sá ég að Davíð fékk boltann í bakverðinum og þá vissi ég að hann var að fara upp allan kantinn, hann er nýkominn inn á og öskufljótur. Þegar boltinn fór á Rolf vissi ég alveg að hann væri að koma á mig, þannig að hann hleypur yfir hann og það var lítið annað sem ég gat gert en að skora."

Viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner