Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
Pétur: Allt öðruvísi en gegn Víkingum
Fyrirliðinn ánægður með fyrsta sigurinn - „Þvílíkur bónus að koma marki inn í lokin"
   þri 25. ágúst 2015 20:48
Magnús Þór Jónsson
Ásmundur: Dómarinn baðst afsökunar
Ásmundur og félagar máttu þola grátlegt tap í kvöld.
Ásmundur og félagar máttu þola grátlegt tap í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Arnarson, þjálfari ÍBV, var virkilega svekktur eftir 1-0 tap sinna manna gegn Víkingi í Pepsi-deildinni í kvöld. Allt stefndi í að leik myndi ljúka með markalausu jafntefli þar til Andri Rúnar Bjarnason tryggði Víkingum sigur á lokasekúndunum.

„Þeir sem hafa upplifað þetta vita það að eins og það er sætt að vinna svona leiki, þá er algerlega grátlegt að tapa þeim. Leikurinn sem slíkur var kannski ekki mikið fyrir augað og það var fátt um fína drætti. Við vorum slakir, sérstaklega í fyrri hálfleik og heppnir að sleppa við að fá á okkur mark," sagði Ásmundur við Fótbolta.net.

„Mér fannst við vinna okkur svo ágætlega inn í leikinn og síðustu 20 mínúturnar vorum við komnir með ágætis tök á þessu, vorum að fá tækifæri, er þá ekki týpískt að það komi eitthvað svona í andlitið á manni?"

„Það sem er kannski ennþá grátlegra er að það er púra brot þegar þeir vinna boltann og break-a upp og dómarinn biðst afsökunar eftir leik að hafa ekki séð þetta."

„Þetta var bæði magi og kjaftur í dag, hægri krókur."

Athugasemdir
banner
banner
banner