Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 25. ágúst 2015 10:00
Magnús Már Einarsson
Balotelli mættur í læknisskoðun hjá AC Milan
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli, framherji Liverpool, er mættur í læknisskoðun hjá AC Milan.

AC Milan hefur náð samkomulagi við Liverpool um að fá Balotelli á láni og ef ekkert óvænt kemur upp á verða félagaskiptin kláruð innan tíðar.

Balotelli spilaði með AC Milan árin 2013 og 2014.

Þessi 25 ára gamli Ítali kom til Liverpool fyrir ári síðan en hefur ekki náð að festa sig í sessi.

Balotelli skoraði einungis eitt mark í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og í sumar hefur hann ekki fengið að æfa með aðalliði Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner