Emil Hallfreðsson, miðjumaður Hellas Verona, er í liði 1. umferðar í Serie A en liðið var opinberað í dag.
Emil stóð sig vel í 1-1 jafntefli Hellas Verona og Roma um helgina en hann lagði upp mark í leiknum.
Emil verður væntanlega að venju í íslenska landsliðshópnum sem mætir Hollandi og Kasakstan í næstu viku.
Í liði vikunnar er hann í góðum félagsskap með mönnum eins og Wojciech Szczesny, Alessandro Florenzi og Stefan Jovetic.
Hér að neðan má sjá liðið.
Athugasemdir