Josep Maria Bartomeu, forseti Barcelona, segir að Neymar sé ekki á leið til Manchester United.
Orðrómur hefur verið um að Manchester United hafi áhuga á Neymar og sé tilbúið að gera hann að dýrasta leikmanni í heimi.
Orðrómur hefur verið um að Manchester United hafi áhuga á Neymar og sé tilbúið að gera hann að dýrasta leikmanni í heimi.
„Þetta eru bara sögusagnir sem fólk skrifar og það er ekkert til í þessu," sagði Josep.
„Neymar er ánægður hjá Barca. Við viljum alls ekki sjá Neymar fara."
„Eftir nokkra mánuði byrjum við að ræða framlengingu á samningi. Við viljum halda honum í mörg ár í viðbót, þrjú, fimm, tíu eða jafnvel fimmtán."
Athugasemdir