Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 25. ágúst 2015 15:32
Magnús Már Einarsson
John Stones óskar eftir sölu frá Everton
John Stones.
John Stones.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn öflugi John Stones hefur óskað eftir eftir því að vera seldur frá Everton.

Chelsea hefur ítrekað reynt að krækja í Stones undanfarnar vikur.

Síðast hafnaði Everton tilboði frá Chelsea upp á 30 milljónir punda.

Stones hefur nú sjálfur óskað eftir sölu í von um að Everton samþykki tilboð frá Chelsea.

Stones vonast með þessu til að verða orðinn leikmaður Chelsea áður en félagaskiptaglugginn lokar næstkomandi mánudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner