Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. ágúst 2015 14:15
Magnús Már Einarsson
Juan Cuadrado til Juventus á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Juventus hefur fengið kantmanninn Juan Cuadrado á láni frá Chelsea út tímabilið.

Hinn 27 ára gamli Cuadrado kom til Chelsea frá Fiorentina í byrjun árs.

Hann hefur leikið 15 leiki með Chelsea en Jose Mourinho sá ekki fram á að Cuadrado væri í sínum plönum fyrir tímabilið eftir að Pedro kom frá Barcelona í síðustu viku.

Cuadrado er því farinn aftur til Ítalíu en auk Fiorentina hefur hann leikið með Lecce og Udinese á ferli sínum.
Athugasemdir
banner
banner