Tyrkneska félagið Trabzonspor hefur fengið kantmanninn Marko Marin á láni frá Chelsea.
Lánssamningurinn gildir út tímabilið en Trabzonspor á síðan forkaupsrétt á Marin.
Marin er 26 ára gamall en hann hefur nánast ekkert spilað með Chelsea síðan enska félagið keypti hann frá Werder Bremen árið 2012.

Marin var á láni hjá Sevilla tímabilið 2013/2014 og á síðasta tímabili var hann á láni hjá Fiorentina fyrir áramót.
Eftir að hafa ekki fengið að spila með Fiorentina þá fór Marin til Anderlecht á láni síðari hlutann á síðasta tímabili.
Athugasemdir