Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   þri 25. ágúst 2015 21:03
Magnús Þór Jónsson
Milos: Þeir sem þekkja mig vita að ég er aldrei rólegur
Milos Milojevic og hans menn gátu fagnað sigri í kvöld.
Milos Milojevic og hans menn gátu fagnað sigri í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Milos Milojevic, þjálfari Víkings, var að vonum í skýjunum með 1-0 sigur liðsins gegn ÍBV í Pepsi-deildinni í kvöld.

Víkingar tryggðu sér sigurinn með marki frá Andra Rúnari Bjarnasyni í uppbótartíma og var Milos ánægður með baráttu sinna manna.

„Þetta eru bestu sigrarnir fyrir mig, fyrir mig eru 1-0 bestu sigrarnir. Ég veit að áhorfendur eru ekki sammála, en vörnin, öftustu sex voru gríðarlega flottir allan leikinn og héldu þetta út. Ég sagði það 100 eða 200 sinnum í síðustu viku að ef við höldum hreinu, þá skorum við mark, og við skoruðum mark. Leikur er 90 plús mínútur og við vorum ready í þessar 90 plús mínútur og uppskerum vel í dag," sagði Milos við Fótbolta.net.

Þrátt fyrir að Víkingur hafi slitið sig frá botnbaráttunni með þessum sigri er Milos ekki rólegur, en FH er næsti andstæðingur.

„Allir sem þekkja mig vita að ég er ekki rólegur og ég vil alltaf vinna næsta leik. Það verður erfitt verkefni, það er toppverkefni og ég er mjög spenntur og ég er alveg viss um að strákarnir eru það líka. Það þarf ekki að mótivera menn til að spila gegn FH."
Athugasemdir
banner
banner