Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
banner
   þri 25. ágúst 2015 20:39
Aron Elvar Finnsson
Ólafur Þór: Blikarnir klára sitt, það vita það allir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mjög sterkur sigur, alltaf erfitt að koma hingað á Akureyri og spila við Þór/KA,” sagði Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar eftir 0-4 sigur gegn Þór/KA í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: Þór/KA 0 -  4 Stjarnan

„Mér fannst við töluvert sterkari aðilinn framan af leik en það jafnaðist aðeins þegar líða fór á leik. Við fengum flott færi fyrstu 10 mínúturnar og hefðum getað verið búin að skora 2-3 mörk þar. Þetta eru bara hörkuleikir, þetta eru liðin í öðru og þriðja sæti og við erum bara mjög ánægðir með að halda hreinu hérna, skora 4 mörk og fara í burtu með þessa þrjá punkta. Það er bara virkilega gott.”

„Við hugsum bara um okkur, við ætlum bara að klára leikina okkar. Við förum í alla leiki til að vinna þá og það hefur ekkert breyst. Við ætlum bara að reyna að klára okkar leiki. Þetta verður ómögulegt, Blikarnir klára sitt, það vita það allir og þeir eru bara vel að því komnir.”

Nánar er rætt við Ólaf hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner