Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 25. ágúst 2015 17:40
Magnús Már Einarsson
Southampton undirbýr tilboð í Virgil van Dijk
Virgil van Dijk.
Virgil van Dijk.
Mynd: Getty Images
Southampton ætlar að bjóða 10 milljónir punda í Virgil van Dijk varnarmann Celtic.

Samkvæmt frétt The Guardian ætlar Southampton að leggja fram tilboðið eftir að van Dijk spilar með Celtic gegn Malmö í Meistaradeildinni í kvöld.

Toby Alderweireld fór til Tottenham í sumar og Florin Gardos verður frá keppni næstu máuðina.

Ronald Koeman hefur því verið í leit að miðverði til að styrkja hópinn.

Koeman er fyrir með miðverðina José Fonte og Maya Yoshida í hópnum sem og Steve Caulker sem kom á láni frá QPR í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner