Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 25. ágúst 2015 14:38
Magnús Már Einarsson
WBA hafnar öðru tilboði frá Tottenham í Berahino
Mynd: Getty Images
WBA hefur hafnað nýju tilboði frá Tottenham í framherjann Saido Berahino.

Tilboðið hljóðaði upp á 22 milljónir punda samkvæmt frétt Sky Sports.

Berahino var ekki í leikmannahópi WBA gegn Chelsea um helgina en hann hefur verið orðaður við Tottenham undanfarnar vikur.

Í gær hafnaði WBA ósk Berahino um að verða seldur frá WBA.

Berahino er 22 ára gamall en hann skaust af alvöru fram á sjónarsviðið með WBA á síðasta tímabili þegar hann skoraði fjórtán mörk í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner