Snæfell 0 - 14 ÍH
Botnlið Snæfells fékk heimsókn frá ÍH í kvöld.
Snæfell var í neðsta sæti og án stiga fyrir leikinn á meðan ÍH var á toppnum.
Það bjuggust því ekki margir við spenandi leik og leikurinn var svo sannarlega ekkert spennandi.
ÍH skoraði 14 mörk án þess að Snæfell náði að svara og risastór sigur staðreynd. ÍH tryggði sér sigur í deildinni með sigrinum en liðið er með 31 stig eftir 12 leiki.
Athugasemdir