Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. ágúst 2016 10:53
Magnús Már Einarsson
Arsenal að vinna Everton í baráttunni um Lucas Perez
Mynd: Getty Images
Arsenal er að kaupa framherjann Lucas Perez frá Deportivo La Coruna á Spáni.

Hinn 27 ára gamli Perez er með klásúlu um að mega fara á 17 milljónir punda.

Everton hafði gert tilboð upp á 17 milljónir punda en þá ákvað Arsenal að blanda sér í slaginn.

Allt bendir til þess að Lucas velji Arsenal frekar en Everton til að eiga möguleika á að spila í Meistaradeildinni.

Lucas skoraði 17 mörk með Deportivo í La Liga á síðasta tímabili en hann hefur meðal annars leikið í Úkraínu og Grikklandi á ferli sínum.
Athugasemdir
banner