Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 25. ágúst 2016 14:04
Magnús Már Einarsson
Björn Daníel á leið til AGF
Björn Daníel Sverrisson.
Björn Daníel Sverrisson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danska félagið AGF er að kaupa miðjumanninn Björn Daníel Sverrisson frá Viking í Noregi. Dagsavisen greinir frá þessu í dag.

Samningur Björns Daníels við Viking rennur út í lok tímabils og hann hafði fyrr í sumar ákveðið að framlengja ekki við félagið.

Viking hefur nú samþykkt tilboð frá AFG í Björn en norska félagið er að reyna að rétta fjárhaginn við.

AGF er í 7. sæti í dönsku úrvalsdeildinni eftir sex umferðir en Theodór Elmar Bjarnason leikur með liðinu.

Björn Daníel er 26 ára gamall en hann kom til Viking frá FH fyrir sumarið 2014.
Athugasemdir
banner
banner
banner