„Það er búið að vera erfitt að safna stigum undanfarið en það eru þrjú stig í dag, það er kærkomið," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, leikmaður Keflavíkur eftir 1-0 sigur á Haukum í kvöld.
Frans Elvarsson skoraði eina mark leiksins, í fyrri hálfleik en það var fyrsta mark liðsins í þrem leikjum.
Frans Elvarsson skoraði eina mark leiksins, í fyrri hálfleik en það var fyrsta mark liðsins í þrem leikjum.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 Haukar
„Stóri munurinn er að í síðustu þremur skorum við ekki mark en í dag náðum við að skora eitt í dag og það skilur liðin af."
Keflavík ætlaði sér upp um deild á þessari leiktíð en það þarf ansi mikið að gerast til að svo gerist úr því sem komið er.
„Við erum ekki að hugsa um þessi lið fyrir ofan okkur, við teljum að það sé of langt í þau."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir