Luka Kostic, þjálfari Hauka var nokkuð hress í viðtali við Fótbolta.net, þrátt fyrir 1-0 tap gegn Keflavík í kvöld.
Frans Elvarsson skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik en Luka segir sitt lið hafa verið líklegra í hálfleiknum.
Frans Elvarsson skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik en Luka segir sitt lið hafa verið líklegra í hálfleiknum.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 0 Haukar
„Við vorum líklegri en þeir til að skora í fyrri hálfleik. Þeir skora mark en við áttum 5-6 frábærar sóknir sem enduðu ekki með marki."
Hann segir seinni hálfleikinn ekki hafa verið merkilegan.
„Í seinni hálfleik fjaraði þetta út, við vorum ekki að ógna þeim neitt og þeir ekki okkur, þetta var dauður leikur allan tíman."
Dagur Dan Þórhallsson, ungur leikmaður Hauka kom inná í seinni hálfleik en hann er sonur Þórhalls Dan Jóhannssonar, aðstoðarþjálfara Hauka og fyrrum leikmann liðsins. Luka segir hann ætla að verða betri en pabbi sinn.
„Hann verður pottþétt betri en pabbi, það er auðvelt að verða betri en pabbi."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir