Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 25. ágúst 2016 09:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Sunderland býður í fyrirliða Sevilla
Iborra á góðri stundu með Sevilla.
Iborra á góðri stundu með Sevilla.
Mynd: Twitter
Sunderland hefur lagt fram tilboð í Vicente Iborra, fyrirliða Sevilla.

Fréttir herma að tilboðið hljómi upp á um sjö milljónir punda en Iborra er 28 ára gamall miðjumaður.

David Moyes, þjálfari Sunderland, hefur fylgst mikið með Iborra en hann kynntist leikmanninum er hann var þjálfari Real Sociedad á Spáni en Sunerland hefur tapað fyrstu tveim leikjum sínum á nýju tímabili.

Talið er að Sevilla sé tilbúið að selja Iborra en hann ku hafa áhuga á því að reyna fyrir sér á Englandi.
Athugasemdir
banner
banner