Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. september 2016 13:09
Jóhann Ingi Hafþórsson
Árbæ
Byrjunarlið Fylkis og Þróttar: Níu breytingar alls
Ásgeir Börkur er kominn í byrjunarlið Fylkis
Ásgeir Börkur er kominn í byrjunarlið Fylkis
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallur Hallsson er í byrjunarliði Þróttar.
Hallur Hallsson er í byrjunarliði Þróttar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er fallslagur í Floridana-Lautinni í dag þegar neðstu tvö liðin í Pepsi-deildinni mætast. Fylkir fær þá heimsókn frá svo gott sem föllnum Þrótturum í næstsíðustu umferð Pepsi-deildarinnar.

Beinar textalýsingar:
14:00 Fjölnir - Stjarnan
14:00 Fylkir - Þróttur R.
14:00 ÍA - Breiðablik
14:00 ÍBV - Valur
14:00 Víkingur Ó. - KR
14:00 Víkingur R. - FH

Vinni Þróttarar í dag hins vegar er Fylkir ansi nálægt því að fara með þeim niður, þá verða þeir ennþá í fallsæti og eiga gríðarlega erfiðan leik gegn KR eftir í síðustu umferð.

Byrjunarliðin fyrir leikinn mikilvæga eru komin. Hjá Fylki koma Ásgeir Börkur Ásgeirsson, Ásgeir Eyþórsson, Oddur Ingi Guðmundsson og Ásgeir Örn Arnþórsson allir inn í liðið frá jafnteflinu gegn Víkingi. Oddur Ingi skoraði gegn Víkingi og er verðlaunað með sæti í byrjunarliðinu í dag. Sonni Nattested tekur út leikbann og Ásgeir Eyþórsson kemur inn í liðið í hans stað.

Hjá Þrótti koma Hallur Hallsson, Björgvin Stefánsson, Guðmundur Friðriksson, Viktor Unnar Illugason og Aron Þórður Albertsson inn í byrjunarliðið en Þróttur gerði jafntefli við Víking Ó. í síðasta leik.

Byrjunarlið Fylkis:
Marko Pridigar
Ásgeir Börkur Ásgeirsson
Tonci Radovnikovic
Ásgeir Eyþórsson
Oddur Ingi Guðmundsson
Sito
Ragnar Bragi Sveinsson
Albert Brynjar Ingason
Garðar Jóhannsson
Ásgeir Örn Arnþórsson
Andri Þór Jónsson

Byrjunarlið Þróttar:
Arnar Darri Pétursson
Hallur Hallsson
Hreinn Ingi Örnólfsson
Vilhjálmur Pálmason
Christian Nikolaj Sorensen
Brynjar Jónasson
Björgvin Stefánsson
Guðmundur Friðriksson
Karl Brynjar Björnsson
Viktor Unnar Illugason
Aron Þórður Albertsson

Beinar textalýsingar:
14:00 Fjölnir - Stjarnan
14:00 Fylkir - Þróttur R.
14:00 ÍA - Breiðablik
14:00 ÍBV - Valur
14:00 Víkingur Ó. - KR
14:00 Víkingur R. - FH
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner