Gregg Ryder, þjálfari Þróttar var nokkuð brattur eftir 2-2 jafntefli við Fylki í dag.
Þróttur er nú endanlega fallið úr deildinni en Gregg segir sína menn hafa vitað það fyrir leik.
Þróttur er nú endanlega fallið úr deildinni en Gregg segir sína menn hafa vitað það fyrir leik.
Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 2 Þróttur R.
„Við vissum að við værum fallnir fyrir leikinn í dag, við vorum ekki að fara að gera það sama og Leiknir F. gerði í Inkasso-deildinni í gær. Leikurinn í dag snérist um að spila vel og sýna að þetta skiptir okkur máli."
Hann segir að sitt lið hefði getað unnið leikinn.
„Við fengum nokkur færi til að skora þar sem þeir fóru mjög framarlega og skiljanlega, þeir þurftu að vinna leikinn. Varnarleikurinn okkar í seinni hálfleik var frammúrskarandi."
Ryder segist ætla að halda áfram með liðið á næsta ári, þrátt fyrir fallið.
„Við vorum með verkefni í ár og það klikkaði hjá okkur. Ég ætla að vera hér á næstu leiktíð að setja saman gott lið."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir