„Þetta er mjög fúlt, sérstalega í þessari baráttu. Við dóminerum sérstaklega fyrri hálfleikinn og þeir komust varla yfir miðju," sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis eftir leik hans manna gegn Stjörnunni á Extra-vellinum í dag, leiknum lauk með 0-1 sigri Stjörnunnar.
Lestu um leikinn: Fjölnir 0 - 1 Stjarnan
„Stjarnan og FH og þessi lið þau bara kunna þetta, að vinna þessa lélegu leiki sem þeir spila." sagði Ágúst í samtali við Fótbolta.net
„Mér fannst það sem ég lagði upp með vera að ganga vel eftir og þess vegna er mjög súrt að sjá á eftir Evrópusætinu en við þurfum að sigra síðasta leikinn og ætlum að gera það í Kópavoginum."
Athugasemdir