Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 25. september 2016 20:04
Ívan Guðjón Baldursson
Ísrael: Viðar Örn skoraði tvö í nágrannaslag
Mynd: Kjartan Björnsson
Maccabi Tel Aviv 5 - 0 Hapoel Tel Aviv
1-0 Nosa Igiebor ('5)
2-0 Tal Ben Chaim ('56)
3-0 Tal Ben Chaim ('64)
4-0 Viðar Örn Kjartansson ('75)
5-0 Viðar Örn Kjartansson ('83)

Viðar Örn Kjartansson setti tvennu fyrir Maccabi Tel Aviv gegn nágrönnunum í Hapoel í ísraelsku deildinni í dag.

Kantmaðurinn flinki Tal Ben Chaim skoraði einnig tvennu í leiknum en Fiorentina er meðal þeirra félaga sem hafa augastað á honum.

Viðar skoraði fjórða og fimmta mark Maccabi í stórsigrinum og er félagið á toppi deildarinnar með 16 stig eftir 6 umferðir.

Viðar hefur byrjað mjög vel í Ísrael og virðist ekki eiga í miklum erfiðleikum með aðlögunarferlið sama í hvaða heimshorni hann spilar.
Athugasemdir
banner
banner