Gary Neville segir að Wayne Rooney þurfi að taka ákvörðun um framtíð sína hjá Manchester United.
Rooney byrjaði á bekknum í 4-1 sigrinum á Leicester í dag en Neville segir að Rooney þurfi að aðlagast miðjuhlutverkinu betur.
„Hann er að fara í nýjan kafla á ferlinum. Hann er að spila aðra stöðu og hann þarf að spila öðruvísi. Ef maður lítur á leikmenn eins og Paul Scholes, Ryan Giggs og Steven Gerrard, þeir breyttu leik sínum til að lengja ferilinn."
„Það var stór ákvörðun hjá Mourinho að taka hann úr liðinu. Það býr til fyrirsagnir," sagði Neville.
Athugasemdir