Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. september 2016 16:14
Arnar Geir Halldórsson
Spánn: Griezmann sá um Deportivo
Antoine Griezmann
Antoine Griezmann
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid 1 - 0 Deportivo
1-0 Antoine Griezmann ('70 )
Rautt spjald:Faycal Fajr, Deportivo ('45)

Atletico Madrid eru enn taplausir í spænsku úrvalsdeildinni eftir sex leiki en liðið fékk Deportivo La Coruna í heimsókn.

Fyrri hálfleikurinn var markalaus en gestirnir urðu fyrir áfalli undir lok hans þegar Faycal Fajr var vikið af velli með rautt spjald.

Einum manni fleiri höfðu Atletico öll völd á vellinum og það skilaði marki á 70.mínútu þegar Antoine Griezmann skoraði eftir undirbúning Kevin Gameiro.

Atletico því með 12 stig eftir sex leiki og hefur liðið aðeins fengið á sig tvö mörk. Deportivo er aftur á móti í neðri hluta deildarinnar með fimm stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner