Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 25. september 2016 13:41
Arnar Geir Halldórsson
Sviss: Rúnar Már skoraði tvö
Markavél
Markavél
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Grasshopper 2-1 Vaduz
1-0 Rúnar Már Sigurjónsson (´23)
2-0 Rúnar Már Sigurjónsson (´50)
2-1 Stjepan Kukuruzovic (´69)

Rúnar Már Sigurjónsson er heldur betur að stimpla sig inn í svissneska boltann en hann var á skotskónum í dag þegar Grasshopper fékk Vaduz í heimsókn.

Rúnar Már kom heimamönnum yfir á 23.mínútu og tvöfaldaði svo forystuna í byrjun síðari hálfleiks. Gestirnir klóruðu svo í bakkann en tókst ekki að jafna og 2-1 sigur Rúnars og félaga staðreynd.

Rúnar Már er nú búinn að skora fjögur mörk á sínu fyrsta tímabili með Grasshopper en liðið er í sjötta sæti eftir níu leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner