Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   sun 25. september 2016 18:59
Ívan Guðjón Baldursson
Úlfur Blandon: Stærsta markmiðið var að bæta sig í fótbolta
Mynd: Grótta
Grótta komst í Inkasso-deildina í gær eftir afar dramatíska lokaumferð í 2. deildinni.

Grótta tapaði fyrir Hetti í lokaumferðinni og reyndist afar heppilegt fyrir Seltirninga að Afturelding tapaði á sama tíma, en Mosfellingar hefðu hirt 2. sætið af Gróttu með sigri.

„Þetta var ömurlegur leikur af okkar hálfu. Við erum með hrikalega ungt lið og er stoltur af strákunum eftir þetta tímabil," sagði Úlfur, en fáir bjuggust við því að Grótta færi upp um deild í sumar.

„Við fórum í alla leiki til að vinna þá og vorum með innandyra markmið, þar sem stærsta markmiðið var kannski að bæta sig í fótbolta."

Úlfur segist ekki vera búinn að hugsa um framhaldið en telur ólíklegt að það verði mikið um breytingar á leikmannahópi Gróttu fyrir tímabilið í Inkasso-deildinni.

„Við erum ekki að fara að gera miklar breytingar á okkar hóp, við lögðum upp með það að gera gott starf á Seltjarnarnesi og fá upp unga Gróttumenn og það helst bara óbreytt, allavega eins og staðan er í dag."
Athugasemdir
banner
banner