Arsenal 2 - 0 West Brom
1-0 Alexandre Lacazette ('20)
2-0 Alexandre Lacazette ('67, víti)
1-0 Alexandre Lacazette ('20)
2-0 Alexandre Lacazette ('67, víti)
Arsenal hafði betur gegn West Bromwich Albion í kvöld og gerði franski sóknarmaðurinn Alexandre Lacazette bæði mörk leiksins.
Jay Rodriguez var næstum búinn að koma West Brom yfir snemma leiks. Brotið var á honum innan vítateigs og harkaði sóknarmaðurinn það af sér og náði skoti í stöngina. Dómarinn vildi ekki dæma vítaspyrnu þrátt fyrir mótmæli gestanna.
Arsenal fékk umdeilda aukaspyrnu skömmu síðar og náði Lacazette að skalla boltann í netið eftir að Ben Foster hafði varið skot Alexis Sanchez út í vítateiginn.
Heimamenn stjórnuðu síðari hálfleik frá upphafi til enda og fengu vítaspyrnu sem Lacazette skoraði afar örugglega úr.
Arsenal er nú í sjöunda sæti deildarinnar, sex stigum frá Manchester-liðunum.
Athugasemdir