Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 25. september 2017 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
Gerrard: Þorði aldrei að koma nálægt Coutinho á æfingum
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson, Steven Gerrard og Rio Ferdinand eru meðal þeirra sem hafa hrósað Philippe Coutinho í hástert undanfarna daga.

Coutinho skoraði og lagði upp í 3-2 sigri Liverpool gegn Leicester um helgina, en Liverpool var næstum búið að missa hann til Barcelona í sumar.

„Stundum er ekki hægt að verjast gegn honum. Þegar við æfðum saman hataði ég að lenda á móti honum í liði," sagði Gerrard.

„Ég sagði honum alltaf að halda sig fjarri mér, því ég veit að hann getur niðurlægt mann. Hann er afar klár leikmaður og yfirleitt nokkrum skrefum á undan varnarmanninum."

Rio telur Liverpool hafa gert afar vel að halda í Coutinho. „Það er kraftaverk að félaginu hafi tekist að halda Coutinho. Þetta er leikmaður í heimsklassa," sagði Ferdinand.
Athugasemdir
banner
banner