Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. september 2017 10:00
Magnús Már Einarsson
Klopp: Vanalega er ég góður varnarþjálfari
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir það hafa verið erfitt að horfa upp á varnarleik liðsins að undanförnu.

Liverpool hefur fengið 11 mörk á sig í fyrstu sex umferðunum í ensku úrvalsdeildinni en einungis Crystal Palace, West Ham og Leicester hafa fengið fleiri mörk á sig.

Klopp var ekki skemmt með varnarleikinn í 3-2 sigrinum á Leicester um helgina.

„Það er augljóst að við fáum of mikið á okkur. Það er engin vafi," sagði Klopp.

„Þetta er mjög erfitt fyrir mig. Vanalega er ég góður varnarþjálfari en þetta hefur ekki gengið nógu vel hingað til."
Athugasemdir
banner
banner
banner