Jose Mourinho, stjóri Manchester United, fer ekki í leikbann eftir að hafa verið rekinn upp í stúku í 1-0 sigrinum á Southampton um helgina.
Mourinho fór út úr boðvangi sínum og var kominn nánast inn á völlinn til að öskra skipanir til sinna manna.
Mike Jones, fjórði dómari, stöðvaði Mourinho en dómarinn Craig Pawson rak Portúgalann síðan upp í stúku.

Enska knattspyrnusambandið hefur farið yfir málið og telur að ekki sé ástæða til að refsa Mourinho frekar.
Athugasemdir