mán 25. september 2017 15:00
Elvar Geir Magnússon
Mynd: Aubameyang ánægður með nýja bílinn
Aubameyang slakur að lifa og njóta á nýja bílnum.
Aubameyang slakur að lifa og njóta á nýja bílnum.
Mynd: Instagram
Pierre-Emerick Aubameyang, sóknarmaður Borussia Dortmund, opnaði veskið og eyddi helling af peningum í nýjan bíl.

Þessi landsliðsmaður Gabon hefur skorað 12 mörk í 9 leikjum fyrir Dortmund og verið sjóðheitur.

Hann hélt upp á þrennuna í 6-1 sigrinum gegn Borussia Mönchengladbach með því að kaupa sér málmlitaðan Lamborghini Murcielago

Þessi 28 ára leikmaður vonast til að halda áfram á skotskónum annað kvöld þegar Dortmund mætir Real Madrid í Meistaradeildinni. Þýska liðið tapaði fyrir Tottenham í fyrsta leiknum í riðlinum.
Athugasemdir
banner
banner