Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 25. september 2017 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Real Betis mætir Levante
Zinedine Zidane var ekki sáttur þegar Real Betis vann 1-0 á Santiago Bernabeu.
Zinedine Zidane var ekki sáttur þegar Real Betis vann 1-0 á Santiago Bernabeu.
Mynd: Getty Images
Real Betis fær Levante í heimsókn í síðasta leik sjöttu umferðar spænska boltans.

Bæði lið hafa byrjað tímabilið þokkalega og eru í efri hluta deildarinnar, með níu stig.

Levante er eitt af fjórum liðum deildarinnar sem er enn ósigrað en leikmenn Betis mæta fullir sjálfstrausts eftir að hafa lagt Real Madrid að velli í síðustu umferð.

Leikurinn verður spilaður klukkan 19:00 í kvöld og getur sigurliðið jafnað Valencia á stigum í 4. sæti deildarinnar.

Leikur kvöldsins:
19:00 Real Betis - Levante
Athugasemdir
banner
banner
banner