banner
   lau 25. október 2014 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Aguero: Ég sakna þess að hafa Balotelli hjá Man City
Sergio Aguero og Mario Balotelli
Sergio Aguero og Mario Balotelli
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero, framherji Manchester City á Englandi, segir í ævisögu sinni Born to rise: My story, að hann sakni þess að hafa Mario Balotelli hjá félaginu.

Balotelli lék í þrjú ár hjá Manchester City eftir að hafa komið frá Inter en hann fór svo frá enska liðinu til AC Milan þar sem hann gerði góða hluti.

Ítalski framherjinn spilar nú með Liverpool en hann kom til félagsins frá Milan fyrir 16 milljónir punda. Aguero segist sakna Balotelli gríðarlega.

,,Ég sakna Mario Balotelli hjá Man City, þó svo hann hafi gert okkur brjálaða," sagði Aguero.

,,Við vissum allir að hann væri smá klikkaður en málið er að hann var klikkaður þegar honum langaði til þess. Við fórum á á æfingu og hann sparkaði boltunum í öfugar áttir bara til að leika sér eða tók upp á því að taka ost og henda í leikmenn."

,,Ég gat ekki annað en leikið mér að því að kynda í honum. Ég kallaði hann fyndnum nöfnum og ataðist í honum en hann vissi að ég gerði það af því ég elskaði hann eins og allir hinir,"
sagði hann að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner