Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. október 2014 14:55
Þórður Vilberg Guðmundsson
Alex Song: Við spiluðum frábærlega í dag
Alex Song
Alex Song
Mynd: West Ham
Alex Song miðjumaður West Ham var ánægður eftir sigur liðsins á Manchester City í dag.

"Við höfum verið að spila vel undanfarið og vildum halda því áfram í dag. Planið var að byrja leikinn jafnvel í dag og þegar við spiluðum við Liverpool um daginn,".

"Þegar við, nýju leikmennirnir, komum í sumar var vel tekið á móti okkur. Andinn er góður og við njótum þess að spila saman," segir Song sem gekk til liðs við West Ham á láni frá Barcelona í sumar.

"Í dag spiluðum við frábærlega. Við spilum sem lið, við vinnum sem lið og við sigrum sem lið," bætti Song við.
Athugasemdir
banner
banner
banner