Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. október 2014 18:49
Magnús Már Einarsson
Bony: Gylfi nær alltaf að gefa á mig
Gylfi og Bony eru góðir saman.  Hér fagna þeir marki í dag.
Gylfi og Bony eru góðir saman. Hér fagna þeir marki í dag.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson og Wilfried Bony voru í stuði í 2-0 sigri Swansea á Leicester síðar í dag.

Bony skoraði bæði mörk Swansea en Gylfi lagði upp það fyrra og var arkitektinn í því síðara.

,,Skilningurinn er góður á milli okkar. Hann var mættur og ég lagði boltann bara á hann," sagði Gylfi eftir leikinn í dag.

Bony er einnig hæstánægður með samstarfið við Gylfa á þessu tímabili. ,,Gylfi nær alltaf að gefa boltann á mig. Ég þarf bara einbeita mér að því að skora mörk," sagði Bony.
Athugasemdir
banner
banner