Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 25. október 2014 18:48
Magnús Már Einarsson
Gylfi meiddur á nára - Ekki með gegn Liverpool?
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson fór af velli á 58. mínútu í 2-0 sigri Swansea á Leicester í dag.

Hann hafði þá lagt upp fyrra markið og átt stóran þátt í öðru.

Gylfi var að glíma við ökklameiðsli á dögunum en að þessu sinni var nárinn að stríða honum.

,,Ég fann til í náranum fyrir leik. Þess vegna fór ég út af," sagði Gylfi eftir leik.

Næsti leikur Swansea er gegn Liverpool í deildabikarnum á þriðjudag og mögulegt er að Gylfi hvíli þar vegna meiðslanna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner