Heimild: 101
Mario Balotelli hefur floppað hjá Liverpool á tímabilinu og aðeins skorað eitt mark síðan hann var keyptur á 16 milljónir punda í sumar.
Nú er svo komið að stuðningsmenn liðsins sem keyptu sér Balotelli treyju frá Liverpool geta komið við fyrir utan leikvang félagsins og skipt henni út fyrir treyju merkta Fowler og númerið 9 á bakinu eins og Robbie Fowler bar alltaf hjá félaginu.
Það er reyndar ekki Liverpool sem býður upp á þetta heldur veðbankinn Paddy Power sem setti upp bás fyrir utan leikvanginn og gerir stuðningsmönnum þennan greiða.
Paddy Power hefur nýtt sér vikuna í að gera grín að Balotelli því fyrr í vikunni endurgreiddu þeir öllum sem höfðu veðjað á að Balotelli yrði markakóngur í ensku úrvalsdeildinni.
Balotelli er annars í byrjunarliðinu gegn Hull City í leik sem er að hefjast.
Athugasemdir