Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. október 2014 14:28
Magnús Már Einarsson
Myndband: Russell Brand kyssti Stóra Sam í viðtali
Mynd: Getty Images
Í janúar á þessu ári óskuðu stuðningsmenn West Ham þess að sjá Sam Allardyce fá að taka pokann sinn.

Nú er öldin önnur en eftir 2-1 sigur á Manchester City í dag er West Ham einungis stigi frá öðru sætinu í deildinni.

Leikarinn Russell Brand er harður West Ham aðdáandi og hann er ánægður með Samma þessa dagana.

Brand ákvað að kyssa Stóra Sam í viðtali eftir leikinn í dag.

Brand kom í miklu stuði inn í viðtalið og kyssti Stóra Sam tvívegis á kinnina eins og sjá má hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner