Mauricio Pochettino, þjálfari Tottenham, segir engar líkur á að Paulinho verði lánaður í janúar. Brasilíski miðjumaðurinn hefur einungis spilað einn leik á tímabilinu en Pochettino segir þó engar líkur á að hann yfirgefi félagið.
Hann var keyptur á 17 milljón punda frá Corinthians árið 2013 en hann hefur orðaður við endurkomu til síns gamla félags vegna þess hversu lítið hann hefur fengið að spila undir stjórn Pochettino.
Hann var keyptur á 17 milljón punda frá Corinthians árið 2013 en hann hefur orðaður við endurkomu til síns gamla félags vegna þess hversu lítið hann hefur fengið að spila undir stjórn Pochettino.
Eftir 8 mörk í 37 leikjum á fyrsta tímabili hans hjá Tottenham, hefur hann einungis komið við sögu í fjórum leikjum í öllum keppnum hjá Tottenham á þessu tímabili. Þar af einungis 30 mínútur í úrvalsdeildinni í 1-0 tapinu gegn WBA.
Samt sem áður, segir Pochettino leikmanninn í áformum sínum og sé því ekki á förum.
Í viðtali við ESPN Brasil, var hann spurður hvort að það væri möguleiki á að hann yrði lánaður aftur til Corinthias. Því svaraði Pochettino:
„Nei. Enginn leikmaður Tottenham verður lánaður til Brasilíu og því Paulinho ekki heldur.
Paulinho kom seint til félagsins eftir HM í sumar. Það er ekkert vandamál með hann. Hann er að æfa vel, þetta er bara tækileg ákvörðun,“ sagði Pochettino
Athugasemdir