Fimm leikir fara fram í spænska boltanum í dag en stærsti leikur dagsins er klárlega leikur Barcelona og Real Madrid.
Almeria mætir Athletic Bilbao klukkan 14:00 áður en El Clasico fer af stað klukkan 16:00 og verður hann auðvitað í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Luis Suarez snýr aftur á völlinn eftir fjögurra mánaða fjarveru en hann samdi við Barcelona í sumar frá Liverpool. Hann beit Giorgio Chiellini er Úrúgvæ mætti Ítalíu á HM í sumar en hann verður að öllum líkindum í byrjunarliði Börsunga.
Valencia mætir svo Elche klukkan 18:00 áður en Alfreð Finnbogason og félagar í Real Sociedad mæta Cordoba á útivelli.
Eibar og Granada mætast svo í síðasta leik dagsins.
14:00 Almeria - Athletic Bilbao
16:00 Real Madrid - Barcelona (Stöð 2 Sport)
18:00 Valencia - Elche
20:00 Cordoba - Real Sociedad (Stöð 2 Sport)
20:00 Eibar - Granada
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir