Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. október 2014 11:19
Þórður Vilberg Guðmundsson
Suarez segist hafa leitað sér aðstoðar
Suarez gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Barcelona í dag
Suarez gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Barcelona í dag
Mynd: Getty Images
Luis Suarez framherji Barcelona gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir liðið í kvöld, gegn Real Madrid, eftir að hafa komið til félagsins frá Liverpool í sumar. Hann hefur nú setið af sér leikbann sem hann hlaut fyrir að bíta Giorgio Chiellini í leik Úrugvæ og Ítalíu í sumar.

Suarez hefur þrisvar á ferlinum verið nappaður við að leggja sér andstæðinga sína til muns en segist nú hafa leitað sér hjálpar.

Í samtali við Guardian segist Suarez eiga við vandamál að stríða “Þetta eru einhver ósjálfráð viðbrögð, skyndihvöt“

“Ég held að ég sé á réttir leið núna, ég er að tala við fólk sem getur hjálpað mér, rétta fólkið“ sagði Suarez.
Athugasemdir
banner
banner
banner