Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 25. október 2016 06:00
Elvar Geir Magnússon
Arnar Helgi og Theodór Guðni framlengja við Njarðvík
Theodór Guðni áfram í Njarðvík.
Theodór Guðni áfram í Njarðvík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
2. deildarlið Njarðvíkur tilkynnti það í gær að tveir af leikmönnum liðsins hafi skrifað undir framlengingu á samningum sínum við félagið og verða áfram í græna búningnum næsta sumar.

Það eru þeir Arnar Helgi Magnússon og Theodór Guðni Halldórsson.

Arnar Helgi er tvítugur að aldri en hann lék 21 leik í 2. deildinni í sumar og skoraði eitt mark. Hann var valinn leikmaður ársins hjá Njarðvíkingum á tímabilinu.

Theodór Guðni var markahæsti leikmaður Njarðvíkinga á liðnu sumri, gerði 7 mörk í 21 leik.

„Það er mikill fengur hjá okkur að halda í þessa tvo leikmenn áfram hjá okkur," segir á heimasíðu Njarðvíkur.

Njarðvík hafnaði í 8. sæti 2. deildar í sumar en fyrr í þessum mánuði skrifuðu þrír leikmenn undir nýja samninga við félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner