Jurgen Klopp hrósar Danny Ings fyrir að leggja hart af sér við að komast aftur í stand en hann hefur verið að glíma við meiðslii.
Ings hefur verið mjög mikið meiddur síðan hann kom til Liverpool. Hann missti af stæsta hluta síðustu leiktíðar ásamt því að spila minna en hálftíma á þessu tímabili.
Hann hefur verið að skora með U-23 ára liði Liverpool en hann fær líklegast að spila gegn Tottenham í deildabikarnum í kvöld.
„Hann hefur unnið mjög hart. Hann hefur mikið meiddur en nú er hann búinn að jafna sig. Við erum hins vegar með Firmino, Sturridge og Origi svo það er ekki mikið pláss fyrir fleiri framherja," sagði Klopp.
Athugasemdir