Ítalski sóknarmaðurinn Mario Balotelli ferðaðist ekki með leikmannahópi Liverpool til Sofia þar sem liðið mætir Ludogorets Razgrad í Meistaradeildinni
Balotelli er enn að glíma við nárameiðsli sem gerðu það að verkum að hann gat ekki spilað í tapleiknum gegn Crystal Palace um liðna helgi.
Balotelli er enn að glíma við nárameiðsli sem gerðu það að verkum að hann gat ekki spilað í tapleiknum gegn Crystal Palace um liðna helgi.
Jordan Henderson er stiginn á fætur eftir veikindi og Jose Enrique er einnig klár í slaginn fyrir leikinn en Liverpool stefnir á að binda endi á fjögurra leikja taphrinu.
Real Madrid er á toppi B-riðils Meistaradeildarinnar með 12 stig, Basel er í öðru sæti með 6 stig, Liverpool hefur 3 stig líkt og Ludogorets. Liverpool þarf því nauðsynlega á sigri að halda.
Athugasemdir