Björgvin Stefánsson er að reyna að losna undan samningi hjá BÍ/Bolungarvík en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Björgvin kom til BÍ/Bolungarvík frá uppeldisfélagi sín Haukum síðastliðinn vetur.
Björgvin kom til BÍ/Bolungarvík frá uppeldisfélagi sín Haukum síðastliðinn vetur.
,,Ég vil fara," sagði Björgvin í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Ég er náttúrulega samningsbundinn Bí út næsta tímabil en mér skilst að það sé verið að vinna í þessum málum."
Björgvin er fæddur árið 1994 en hann skoraði níu mörk í fjórtán deildar og bikarleikjum með BÍ/Bolungarvík í sumar.
Björgvin er sóknarmaður en hann hafði áður skorað átta mörk í 56 deildar og bikarleikjum með Haukum.
Athugasemdir